11.03.2009 23:59:34 / Gunnar Laxdal

Er fólk eitthvað vitlaust?

Jæja gott fólk, ég verð að segja eins og er þá er ég alls ekki ánægður með heimsóknir á þessa síðu. Ein góðhjörtuð manneskja sem hefur raunverulega vit á hvað góð bloggsíða snýst um hefir sótt þessa síðu í dag. Ég hvet alla til að kíkja við og skoða því miklar líkur eru á að hér skapist málefnalegar umræður um allt og ekkert. Þeir sem hafa réttu lífsspekina eiga eftir að elska þessa síðu. Það er ég viss um.

Ég Gunnar Laxdal varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu fyrr í dag er ég mætti samstarfsfélaga mínum og þúsundþjalasmiðnum Jóni Skíðasyni í Nettó í Hverafold. Þar ræddum við um daginn og veginn en á endanum komust við að sameiginlegri ákvörðun um að festa kaup á Nýmjólk. Jón minn reddaði mjólkinni og borgaði fyrir hana 97 kr. sem er hreint og beint okur fyrir slíka mjólk. Mér blöskraði svo sannarlega en mér rann fljótt reiðin. Þá lá leið okkar í bakarí er ber það fróma nafn Sandholt. Gerðum við eigi allgóð kaup þar sem við borguðum 180 kr fyrir snúðsræfil með súkkulaði glassúri. Tylltum vér þá okkur niður að lokum í bakarínu og ræddum saman um háttarlag góðavinar okkar sem eigi verður fjölyrt um að svo stöddu. Eftir skýrar og góðar umræður fór svo að ég leit á mjólkurfernuna er ég gerði grein fyrir hér áðan. Sá ég að fitumagn mjólkurinnar er 3,9% sem ég tel vera helvítis kettlingafóður. Mjólkin á að minnsta kosti að vera í 5-6 prósentum! Braust reiði mín þá aftur fram með slíkum ósköpum að ég barði harkalega í glerjað borðin og blótaði hástöfum. 97 krónur íslenskar fyrir helvítis kettlingaskít sagði ég með sjálfum mér, steinhissa. Mjólkin ætti í raun að kosta 91 krónu þar eð 6 krónu virðisaukaskattur er lagður á þetta helvíti. Jæja ég veit að einhverjir menn hér í þjóðfélaginu hafa aldrei spáð í slíku er ég er að velti fyrir mér fyrr í dag. Það munaði minnstu að ég gengi hörðum skrefum inn í verslun Nettós aftur og krefðist endurgreiðslu fyrir okkar stallbræður. Með 97 krónum er hægt að kaupa ansi mikið! Ef þú legðir 97 krónur fyrir á hverjum degi í einn mánuð ættir þú um 3000 krónur í sparibauk þínu elskan mín. Hugsaðu manneskja, hugsaðu. Jæja allt í lagi. Sem betur fer náði Jón að sefa mig  svo að ég lagðist aftur í stólinn. Stuttu síðar lýstist upp allt bakaríið er gamla herfann hvarf og ungleg telpa steig inn fyrir dyr bakarísins og tók völdin yfir öllum störfum þess. Já kæru vinir það var frábært. Fór þá minn heimspekilegi þenktimáti af stað...og svo gerðist ekki neitt. Ég sleit samtali við Jón vin minn og hvarf inn í myrkur dagsins.

Að lokum vil ég minna á www.egerhlunkakeppur.is. Já og ég sá einnig allsberann, vitskertann og leiðinlegan einstakling hlaupa yfir götuna í rigningu dagsins. Þar á ferð fór Hlöðver Hlöðversson einfari og fyrrum páskahéri. Vonum bara að hann fái aftur starf sitt sem páskahéri þetta árið þar sem páskarnir eru að nálgast. Gott gott og bless.

The stars are shining in the velvet sky
Gunnar Laxdal kveður.
unglega bakaratelpan =) skrifaði
hahaha þið eruð snillingar, ég er mjög ánægð með það að hlöðver hlöðversson sé mættur hress og kátur aftur til leiks :D
Gunnar Laxdal skrifaði
Hér sé ég að manneskja er mætt á svæðið með alvöru lífssepki. Ég segi bara að þú sért snillingur! Já og vonandi verðum framhald á sögum um hann Hlöðver Hlöðversson vin okkar.
Gunnar Laxdal þakkar þér fyrir fysta kommentið á þessa síðu. Þú hefur unnið þér inn 5.000.000 milljónir króna. Þú krefst peningsins um leið og þú sérð mig næst
Gunnar Laxdal.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 1181
Könnun
Hvað eru Gunnar Laxdal og Jón Skíðason gamlir?